Nú er sko heldur betur komið að blogg-uppgjöri
GLEÐILEGT SUMAR ALLIR 

Hreiðar Ægir verður stóri bróðir í byrjun nóvember

Öspin og Nonni eru að fjölga mannkyninu í annað skiptið

Mamman er komin 15 vikur á leið

Hreiðar er smátt og smátt að uppgötva það að hann sé að verða stóri bróðir og finnst það afar áhugavert að mamma sín sé með lítið barn í maganum. Hann er duglegur að knúsa og kyssa bumbuna og fer voða varlega að henni

Hann veit líka að hans tveir bestu vinir voru að eignast lítil systkin. Rannveig Björk var að verða stóra systir og Orri Páll stóri bróðir


Mamman fær líka að vera samfó nokkrum vinkonum á meðgöngunni sinni. Hún Ingibjörg Ösp og Stella vinkona eru nefnilega líka óléttar. Ætli þetta sé einhver faraldur


Nú, ástæðan fyrir því að við höfum ekki skrifað blogg í lengri tíma er einmitt sú að Aðal-blogg-skrifstýran er búin að vera á fullu í verkefnaskilum og lokaprófum, enda á hún að útskrifast þann 12. júní næstkomandi með kennslufræði til kennsluréttinda. Vonum að hún nái öllum prófunum.
Einnig hefur hún verið svolítið óglöð með lágan blóðþrýsting, en það er bara til styrkingar, herða konuna upp fyrir erfiðasta partinn, híhí

Pabbi hefur líka verið upptekinn í prófum og fullri vinnu með. Hann er nú bráðum að fara að taka smá vaktatörn, enda er mamman búin að vera ansi frek á að hann taki sér nokkurra daga frí til að hún komist í þessar blessuðu námslotur sínar á Akureyri. Nú eru loturnar fyrir bí og við erum byrjuð að sjá fyrir endan á þessum ósköpum. Og þá er komið að skuldardögum, og hver annar tekur það á sig enn pabbinn sjálfur, greyið. Hann ætlar reyna að vinna og vinna næsta mánuð til að ná upp tekjumissinum, dugnaðarforkur hann pabbi

Svo er það hann Hreiðar Ægir. Hann er búinn að vera duglegur í Íþróttaskólanum 4 sunnudaga í röð. Nú er skólinn búinn, en þegar hann mætti þessa sunnudaga var sko heldur betur fjör. Hann fékk að hoppa, skoppa, henda boltum út um allt, fara í kollhnís, og ég veit ekki hvað, og viðbrögðin hjá mömmu og pabba voru klapp klapp og hrós hrós

Hann er nú meiri sport-dýrlingurinn, elskar að leika sér. Svo þegar hann kom heim eftir Íþróttaskólann var hann dauðþreyttur og lognaðist útaf í rúminu sínu, og svaf heillengi, enda þurfti hann að ná upp orkunni til að gera mömmu og pabba brjáluð um kvöldið, híhí

Nú er Hreiðar orðinn svo stór að hann er að færast upp um deild í leikskólanum um mánaðarmótin maí/júní, loksins loksins

Hann fær að vera samferða besta vini sínum á leikskólanum, honum Orra Páli, ekki leiðist honum það. Vonandi eiga þessi skipti eftir að ganga vel, það eru nú svolítil viðbrigði að fara frá smábarnadeildinni og upp í deild þar sem börnin verða að berjast um sætið sitt af hörku, höfum við allavega heyrt


Hreiðari Ægi og foreldrum var boði í mat fyrir nokkru til Orra Páls. Þar var sko dekrað við vinina tvo. Þeir fengu dýrindis lambalæri að borða, ís í eftirrétt, snakk í næsta eftirrétt, horfa á latabæ, drasla rosa mikið til, fara í bílaleik, hoppa í sófanum, klifra upp á borð og ég veit ekki hvað og hvað


Þeir skemmtu sér konunglega, enda eru nokkrar myndir af þeim hér fyrir neðan

Mamman ætlar að koma núna um hvítasunnuhelgina og vera fyrir sunnan 21.-25. maí. Pabbinn ákvað að gefa henni og Hreiðari flug til Reykjavíkur í fyrirfram afmælisgjöf

Við ætlum að vera hjá Ömmu Bryndísi og Afa Ásgeiri sem nýlega er kominn heim frá Afríku. Það verður sko gaman að hitta alla fjölskylduna enda orðið þó nokkuð langt síðan síðast

Okkur hlakkar mikið til, jibbí

Tvö líf fengu að líta dagsins ljós nú á dögunum:Vinir okkar í Rvk, Þórdís og Bjarni, eignuðust yndislega
stúlku þann 16. apríl.
Vinir okkar á Esk, Ingunn og Palli, eignuðust yndislegan
strák þann 24. apríl.
INNILEGA TIL LUKKU með litlu demantana
Allnokkrir hafa átt afmæli síðan síðasta blogg var skrifað og viljum við óska þeim
INNILEGA TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ
Benni frændi varð hvorki meira né minna en 20 ára þann 4. maí.
Wulan, SOS dóttir okkar í Indónesíu, varð 8 ára þann 8. maí.
Rúnar Karl úti í Danmörku varð 2ja ára þann 9. maí.
Og núna þann 17. maí eiga
Elli mágur og
Snúlla frænka afmæli

Svo þann 31. maí verða
Nonni og Ösp búin að vera saman í 12 ár
TIL LUKKU LUKKU LUKKU LUKKU 

Niðurstöður úr síðustu könnun þar sem spurt var um hver Hreiðar Ægir segir að sé besti vinur sinn: Flestir sögðu að það væri Afi Ásgeir, einn sagði Mamma, 2 sögðu Snússa ryksuga og 5 sögðu Pabbi. Rétt svar á þessum tíma var hann
Afi Ásgeir 
Nú hins vegar segir hann stundum Pabbi sinn, eða hann Orri Páll

Endilega svarið næstu könnun sem við vorum að setja inn. Það er kannski allt of snemmt að spyrja þar sem Mamman er aðeins komin 15 vikur á leið ... en hvaða kyn grunar ykkur að hún gangi með? Spennó spennó

Jæja, þetta er orðinn ansi mikill texti fyrir ykkur að lesa lesendur góðir ... vonandi nenntuð þið að renna yfir þetta

Og við viljum endileg heyra frá ykkur, þannig endilega kvittið fyrir ykkur, segið okkur til dæmis hvað þið hafið planað í sumarfríinu sem nálgast óðfluga

Biðjum vel að heilsa, vonandi hefur ykkur gengið vel í prófum og verkefnum þið sem eruð í námi, og vonandi á ykkur eftir að ganga vel áfram. Þið hin slakið bara á og njótið sólarinnar þegar hún lætur sjá sig öðru hverju á þessu blessaða landi voru

Hér koma svo allnokkrar myndir fyrir hér fyrir neðan
Knús og kossar frá Okkur á ESK :*